Hjördís Dröfn VilhjálmsdóttirLeiðtoga- og teymisþjálfiHjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir elskar að sjá fólk upplifa það að ná árangri umfram væntingar um eigin getu og sjá teymi vinna þannig saman að töfrar verði til. Að mati hennar felst lykillinn að árangri í hugrekki til breytinga, vel útfærðri aðgerðaráætlun og nettum sveigjanleika til að takast á við þær áskoranir sem upp koma. Hjördís er kjörinn ferðafélagi á slíkri vegferð sem hvetur, ögrar, hrósar og rýnir til gagns.
Hjördís er leiðtoga- og teymisþjálfi (e. Executive and Team Coach) með alþjóðlega ACC vottun frá ICF. Hún er einnig vottaður tilfinningagreindarþjálfi (EQ-i Practitioner) og NBI Practitioner og Whole Brain Coach. Hún er með MSc. í stjórnun og stefnumótun og BSc. í hagfræði. Hjördís býr yfir áratugareynslu sem stjórnandi, ráðgjafi og greinandi. Breytinga- og krísustjórnun er hennar kjarnafærni og hún býr yfir margþættri reynslu á því sviði. |
Taktu flugiðAllt of margir eiga sér draum en trúa því ekki að þeirra draumur geti orðið að veruleika.
Taktu flugið er slíkur draumur - bara orðinn að veruleika! Það eru töfrar hvað fólk þarf stundum litla hvatningu eða aðstoð við að líta inn á við. Þora að segja upphátt frá draumnum og vinna að því að raungera hann. Taktu flugið veitir aðstoð á slíkri vegferð með hvatninu, stuðningi, ögrun og huggun. Allt eftir því hvað hentar best hverju sinni. "Það er mögnuð tilfinning að horfa á eftir viðskiptavinum fara út af markþjálfunartímum - fulla af eldmóð fyrir næstu verkefni" Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir |
Vörur og þjónusta
Mikill metnaður er lagður í faglega nálgun og áhersla er lögð á
að nálgast viðfangsefnin eins og þau henta viðskiptavininum best
að nálgast viðfangsefnin eins og þau henta viðskiptavininum best
Leiðtoga- & stjórnendaþjálfunMarkþjálfun er fyrir fólk sem vill sjá aukinn árangur, ná meiri skilvirkni eða fá skýrari sýn á hlutina. Nálgunin er einstaklingsmiðuð og lögð er áhersla á vöxt einstaklingsins á ákveðnu sviði eða við að ná fyllri tökum á verkefni eða aðstæðum. Unnið er með vitundarsköpun og áhersla er lögð á að virkja þá styrkleika sem viðskiptavinurinn býr yfir og að vinna með veikleikana.
Tilfinningagreind og mikilvægi hennar fyrir leiðtoga er ótvírætt. Hjá Taktu flugið er unnt að fá greiningu á tilfinningagreind og Leiðtoga- og stjórnendamarkþjálfun hjá Taktu flugið er fyrir alla á vinnumarkaði. Hún getur hentað fyrir stjórnarmenn og -konur, forstjóra, millistjórnendur verkefnastjóra, stjórnmálafólk, einstaklinga með rekstur eða almenna starfsmenn. Hún hentar hvort heldur sem er fyrir einstaklinga sem starfa hjá hinu opinbera eða á almennum vinnumarkaði. |
TeymisþjálfunAð láta töfra verða til
Einn mikilvægasti þáttur í velgengni þar sem fleiri en einn vinna að sama markmiðinu er þegar hópurinn vinnur þétt saman. Allir ganga í sama takti að sameiginlegu markmiði og einstaklingarnir styðja við hvern annan til að nýta styrkleika hvers um sig til fulls. Hjá Taktu flugið er unnt að fá sérsniðna faglega aðstoð við að styrkja teymi þannig að töfrar verði til. BreytingastjórnunHjá Taktu flugið er unnt að fá sérsniðna aðstoð við uppstokkun og sameiningar deilda og fyrirtækja eða við aðrar breytingar. Slík aðstoð getur verið í formi ráðgjafar við breytinguna, útfærslu og framkvæmd breytingarinnar, markþjálfunar, sáttamiðlunar og annarra atriða sem upp koma.
|