• Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið
TAKTU FLUGIÐ
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið

​Þjálfun

GÓÐIR STJÓRNENDUR ÞURFA ÞJÁLFARA - RÉTT EINS OG GOTT ÍÞRÓTTAFÓLK

Vaxtarhugarfar

 Fólk sem tileinkar sér vaxtarhugarfar er þeirrar skoðunar að þau geti vaxið sem einstaklingar með markvissri vinnu, lærdómi og þrautseigju. Þau sjá áskoranir sem tækifæri til að vaxa, líta á það sem þau gera (mistök og árangur) sem og vegferð að framförum og eru þrautseig þegar á móti blæs. 

Við aðstoðum leiðtoga og teymi við að vaxa og styrkja sig með aðferðafræði þjálfunar.
​Aðferðafræðin sem slík felur í sér að nálgunin er sniðið að þörfum hverju sinni.  ​


Bóka kynningartíma í þjálfun
Spyrjast fyrir
Picture

Ummæli

Hjördís hefur þann góða eiginleika að hvetja með jákvæðum hætti til sjálfsskoðunar
og rýni á venjur og vinnubrögð án þess að ákveða lausnir fyrir viðkomandi.
​Þá setur hún skýran ramma um þjálfunina og fylgir þeim ramma vel eftir.
Ég hafði mikið gagn af þálfuninni og mæli eindregið með Hjördísi Dröfn sem þjálfa.
​

Linda, forstöðumaður á 70 manna vinnustað 

Leiðtoga- & stjórnendaþjálfun

​Hvort sem þú ert að byrja í nýju starfi og vilt taka það föstum tökum, vilt ná betur utan um verkefni þín og forgangsröðun, ert að huga til hreyfings en veist ekki alveg hvað næst, vilt efla þig í samskiptum. Nú eða bara taka stöðuna. Þá getur persónuleg þjálfun gert ótrúlega mikið.
Sjá nánar

Teymisþjálfun

Það er ekkert í bókinni sem segir að það sé sjálfgefið að teymi afkasti samanlagðri getu einstaklinganna sem þau skipa.
Hvað þá meira! 
Hópíþróttalið hvorki starfa né mæta til leiks án þjálfara!
Af hverju ættu þá teymi og deildir innan fyrirtækja að starfa án þjálfara? Hverju myndi það breyta ef þau hefðu þjálfara?
Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á það að teymi sem skara frammúr öðrum - starfa öll með þjálfara. 
​
Sjá nánar

Sáttamiðlun &
þjálfun samskipta

Samskipti á vinnustað þurfa hvorki að vera erfið eða flókin. En af hverju gerist það þó stundum? Ástæðurnar og aðdragandinn geta verið af ýmsum toga en góðu fréttirnar eru þær að í lang flestum tilvikum er unnt að vinna með hlutina og bæta samskiptin, gæði þeirra og líðan starfamanna með utan að komandi aðstoð.
sjá nánar

Umbótafundir  & Vinnustofur

Einfalt!
Fljótlegt!
Skilvirkt!
​Árangursríkt!

Sjá nánar

Fyrirlestrar

Ný nálgun og fræðsla leiðir til vitundarvakningar
sJÁ NÁNAR

Starfsdagar

Ýmis þjónusta í boði til að efla starfsfólk. Allt frá 30-40 mínútna fyrirlestrum upp í heilan dag. 
Dæmi um efnistök eru:​​
- ​Sálrænt öryggi teymis (könnun meðal teymismeðlima, fræðsla, vinnustofa (1/2 dagur)

- Unnið með gildi og merkingu þeirra í starfi (1/2 dagur)
- 360° huggreining starfsfólks (greining einstaklinga & teymis, fræðsla og vinnustofa (1/2 dagur)
- Draumasmiðjan, vinnustofa um hugarfar og að opna á tækifæri 1,5-2 klst. fyrir 1-1.000 manns.Fyrirlestrar 30-60 mínútur.
Bóka fund um nálgun
Bóka upplýsingafund
spyrjast fyrir
Picture

Taktu flugið

[email protected]
Sími: +354 864 2332
​
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið