• Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið
TAKTU FLUGIÐ
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið

Að tileinka sér þjálfandi & eflandi samskipti

Hver vill ekki að eiga samskipti sem eru bæði gefandi og uppbyggileg fyrir báða aðila. Það er ekki meðfæddur eiginleiki að eiga uppbyggileg og gefandi samskipti heldur eiginleiki sem hægt er að læra og þjálfa með markvissum hætti. 

Hvort sem þú ert að starfa sem stjórnandi, við verkefnastjórn, í heilbrigðisþjónustu, í framlínu hjá hinu opinbera, í framlínu hjá þjónustufyrirtæki, í söludeild eða hverju því starfi sem krefst samskipta við annað fólk. Þá eru meiri líkur á að þér muni vegna betur í starfi ef þú býrð yfir góðri samskiptafærni.  
Þetta námskeið er einmitt sniðið að því að hjálpa fólki við að læra að eiga uppbyggileg og gefandi samskipti. En ekki bara það heldur að læra aðferðafræði við að leiða erfið samtöl þannig að þau verði markvissari og læra að brynja sig fyrir neikvæðum áhrifum sem erfið samtöl geta haft á mann. 

Kennd er aðferðafræði markþjálfunar og það hvernig unnt er að nota aðferðafræðina í raunaðstæðum og samskiptum þó að ekki sé um eiginlega markþjálfun að ræða. Eftirfylgnitímar eru til að fylgja eftir og er vettvangur til að taka upp það sem þarf til að hjálpa þátttakendum að tileinka sér lærdóminn, nema eigin hegðun og breyta. 
Picture

Hvað var best við námskeiðið?

- Hversu vel allt var kjarnað. Nýjar og áður óþekktar spurningar & innsýn í hluti sem skipta sköpum.
- Skýrt sett fram, blanda af fræðum og raundæmum.
- Gott að minna reglulega á og að nota virka hlustun, speglun
​og opnar spurningar.
- Hvað Hjördís var yfirveguð og kom efninu vel frá sér. Hreif aðra með sér.

Ávinningur!

Þátttakendur á námskeiðinu læra um aðferðafræði markþjálfunar og hvernig unnt er að nýta hana í daglegum samskiptum ásamt því að fá þjálfun við að tileinka sér lærdóminn og styrkja samskiptafærni sína. 
  • Aukinn skilningur á sjálfum sér og hvernig eigin tilfinningar, viðhorf, skoðanir og persónulegir eiginleikar hafa áhrif inn í samskipti.
  • Læra um uppbyggingu samtals. halda því við efnið án þess að fara út um víðan völl og leiða samtalið til lykta þannig að allt hafi komið fram sem þurfti að koma fram.
  • Læra aðferðafræði til að fá skýrari sýn á þarfir, langanir og vilja viðmælenda. 
  • Læra að átta sig á hvenær við leyfum tifinningum annarra að verða okkur, jafnvel þó okkur líði ekki vel með það. Hvernig kommum við í veg fyrir að það gerist?

Fyrir hverja?


Þetta námskeið hentar fyrir einstaklinga, deildir og stjórnendahópa á vinnustöðum. Unnt er að fá námskeið bæði fyrir einstaklinga og teymi.
  • Stjórnendur með mannaforráð.
  • Verkefnastjóra.
  • Þjónustu í framlínu.
  • Sölufólk.
  • Heilbrigðisstarfsfólk.
  • Kennara og leiðbeinendur.
  • Leiðtoga fyrirtækja sem eru að vinna markvisst með menningu fyrirtækisins.
  • Efnilegir stjórnendur framtíðarinnar (Arftakaáætlun).

Námskeiðið er tvíþætt: 

1.  Staðarlotur 
Fræðsla um hugmyndafræði markþjálfunar, æfingar og umræður. 
 Áhersla er lögð á að kynna aðferðafræði markþjálfunar fyrir þátttakendum og hvernig unnt er ða tileinka sér hana í leik og starfi. Sérstaklega er horft til mismunandi eðlis starfa s.s. sölu, þjónustu og erfiðra samtala af ýmsu tagi. Nálgunin er aðlöguð að þátttakendum hverju sinni. 
Uppbygging samtalsins og tilgangur. Leiðir til að skapa skýran ramma um samtalið og halda samtalinu innan þess ramma.
Horft er til eigin viðhorfa og áhrifa þeirra inn í samskipti og áhrif annarra á þátttakendur. Hvernig er unnt að nota eigin viðhorf til að brynja sig fyrir erfiðum samskiptum í starfi og draga þannig úr streitu.
​Æfingakver fylgir með.

Lengd 3x3 klst.
2. Eftirfylgni
Sambland af áframhaldandi fræðslu og þjálfun þar sem þátttakendur vinna annars vegar með það að tileinka sér aðferðafærði markþjálfunar í  samskiptum við viðskiptavini eða skjólstæðinga. Hins vegar eru þátttakendur aðstoðaðir við að auka sjálfsþekkingu sína í samskiptum og skoða hvaða áhrif þau hafa inn í samskiptin og hvað hefur áhrif á þau. Áhersla hverju sinni fer eftir því hvað þátttakendur vilja skoða nánar og vinna með.
Lengd 3 x 1,5 klst. 

Teymisnálgun 
​Þetta námskeið hentar sérstaklega vel fyrir teymi af ýmsu tagi. Þar má nefna framlínu opinberra stofnana
sem eiga á stundum afar arfið samtöl við einstæðinga. Fyrirkomulag námskeiðsins er eins og einstaklingsnámskeiðið að viðbættri leiðtogaþjálfun þar sem leiðtogi teymisins fær einnig leiðtogaþjálfun þar sem unnið er sérstaklega með þær áskoranir
sem fylgja því að innleiða lærdóminn á námskeiðinu. Þá er unnið með saeiginlegan lærdóm teymisins.
​Lengd leiðtogaþjálfunar 3x3 klst.
Picture

... endurhugsun á hvernig er hægt að eiga uppbygglileg samtöl við sig og aðra

Næsta námskeið

Ekkert opið námskeið er skipulagt eins og er.

Námskeiðið hentar afar vel sem þjálfun fyrir stjórnendur, einstaklinga og teymi sem vinna í framlínu við þjónustu, sölu eða samskipti sem geta verið krefjandi á stundum. 
​
Þegar fyrirtæki kaupa þetta námskeið til sín þá er nálgunin sniðin að þörfum hverju sinni. 

Verð

Í lausasölu er verð fyrir hvern einstakling kr. 135.500,-

Þegar fyrirtæki eða hópar kaupa námskeið til sín þá er veittur hópafsláttur. Afslátturinn sem er veittur getur verið mismunandi og tekur mið af fjölda, veitingum á námskeiðinu, staðsetningu og ramma námskeiðsins.  
​
Gert er verð og verktilboð í þetta námskeið.  

Vettvangur uppbyggilegra og gefandi samskipta... 

... er það eitthvað fyrir þinn vinnustað?

Forvitnast um námskeiðið
​Átt þú rétt á styrk?
Flest stéttarfélög hafa menntastyrk sem félagsmenn geta sótt um námsstyrki
til faglegrar menntunar eins og þetta námskeið er. Styrkir eru oftast veittir
​að stórum hluta eða öllu leiti. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
Einnig geta flestir vinnuveitendur sótt í sambærilega sjóði.
Ekki er úr vegi að kanna slíkt hjá þínum vinnustað.
Picture

Taktu flugið

[email protected]
Sími: +354 864 2332
​
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið