Þetta námskeið er tilvalið fyrir þig ef þú vilt taka starfið þitt föstum tökum,
bæta árangur, fá betri yfirsýn, minka streitu, skipuleggja þig betur,
finna jafnvægi milli vinnu & einkalífs, auka vellíðan í starfi.
Eða...
... ef þú ert að hugsa þér til hreyfings en ert óviss um hvert næsta skref á að vera.
|
Það getur verið ótrúlega lærdómsríkt fyrir fólk að staldra við, setjast niður með sjálfu sér og fá hreinar og heiðarlegar spurningar frá utan að komandi aðila eins og til dæmis:
Hvað er árangur í þínum huga? Hvað þarftu til að ná þeim árangri? Hvernig viltu að þér líði í starfi? Hvað skiptir þig mestu máli? Hvert viltu stefna í starfi? Ertu að fylgja þeirri stefnu? |
Þetta námskeið er einmitt réttur vettvangur til að rannsaka þessar spurningar eða mögulega aðrar spurningar sem eru bestu spurningarnar fyrir þig til að svara. Hjördís skoðar með þér hvaða spurningar eru áhrifaríkastar fyrir þig og vinnur með þér áfram þangað sem að svörin leiða þig!
Námskeiðið er sniðið að þörfum hvers og eins og er í formi einstaklingsþjálfunar með möguleika á persónugreiningum (360° hugsnið eða tilfinningagreind) eða fræðslu. Allt eftir þörfum. |
Fyrir hverja?
|
Ávinningur!Ávinningurinn á þessu námskeiði getur verið mjög mismunandi eftir því hverju hver og einn þátttakandi er að leita eftir. Hér væri hægt að lofa ýmsu en þegar upp er staðið þá er þetta námskeið faglegur farvegur fyrir þinn leiðangur að þínum árangri.
Ófáir sem koma á þetta námskeið fá meira út úr námskeiðinu en þau gáfu sér í hugarlund í upphafi. Það eru líka töfrarnir því hér er vettvangur fyrir þig til að gera það sem þú hefur ekki gert dags daglega til þessa. Það sem er hægt að lofa hér, er að þetta er ferli þar sem Hjördís skorar á þig, er krefjandi, hvetur styður við og rýnir til gagns. Allt til þess gert að þá fáir sem mest út úr tímanum. Ávinningurinn er síðan þinn! |
|
Haustið 2023 var ég svo lánsöm að fá tilboð um einstaklingsmarkþjálfun hjá Hjördísi Dröfn. Ég þekkti ekki mikið
til markþjálfunar þegar ég fékk boðið en ég sé svo sannarlega ekki eftir því að hafa nýtt mér þjálfunina. Hjördís hefur þann góða eiginleika að hvetja með jákvæðum hætti til sjálfsskoðunar og rýni á venjur og vinnubrögð án þess að ákveða lausnir fyrir viðkomandi. Þá setur hún skýran ramma um þjálfunina og fylgir þeim ramma vel eftir. Ég hafði mikið gagn af markþjálfuninni og mæli eindregið með Hjördísi Dröfn sem þarkþjálfa. Linda, Forstöðumaður á 70 manna vinnustað. |
Fyrirkomulag námskeiðs |
Verð |
|
Námskeiðið telur 5 klukkustundir með Hjördísi. Oftast er hver tími 1 klst. í senn. Tímalengd milli hittinga getur verið mismunandi og það er ákveðið hverju sinni og þá eftir þörfum. Heimavinna milli tíma getur verið ýmist í formi verkefnis eða sjálfsvinnu af einhverju tagi.
Oftast mælir Hjördís með að þátttakendur taki persónugreiningu. Það er þá EQ-i 2.0 tífinningagreindargreining eða NBI 360° hugsnið. Slík greining er valið í samstarfi við þátttakendur með það að leiðarljósi að greiningin styðji við þann leiðangur sem lagt er upp í. Einnig er unnt að kaupa staka greiningu með leiðtogaþjálfun eða vera í áskrift. Að vera í áskrift að leiðtogaþjálfun felur í sér einn tíma á mánuði og aðgengi í síma x1 í mánuði í allt að 30 mínútur í senn. Lítið mál er að færa tíma milli mánaða og t.d. sleppa tímum yfir sumarmánuðina og taka fleiri saman að hausti til stefnumótunar og skipulagningar. |
Stakur tími í leiðtogaþjálfun, kr. 29.500,-
Pakki: 5 tímar án greiningar, kr. 130.000,- Pakki: 5 tímar og NBI hugsniði, kr. 150.000,- Pakki: 5 tímar og Tilfinningagreindargreining (leiðtogi) kr. 170.000,- Áskrift: 12 tímar og möguleiki á 12 símtölum*: kr. 280.000, - Stakar greiningar**: NBI hugsnið, almenn eða leiðtoga: kr. 24.500,- Tilfinningagreind (EQ-i 2.0), almenn : kr. 32.000,- Tilfinningagreind (EQ-i 2.0), leiðtoga: kr. 45.000,- * Einstaklingar í áskrift fá 20% afslátt af greiningum. ** Þegar stakar greiningar eru keyptar þarf einnig að kaupa a.m.k. einn tíma með í leiðtogaþjálfun til að fara yfir greininguna. |