• Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið
TAKTU FLUGIÐ
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið




​Sáttamiðlun
​& þjálfun samskipta


​Samskiptafærni ræðst ekki af því
​hversu vel máli farin við erum
​- heldur hversu vel fólk skilur okkur!

Samskipti má þjálfa!

Við þekkjum það öll að eiga mismunandi góð samskipti við annað fólk. Stundum ganga þau með virktum þar sem við erum bæði skilin og skiljum aðra. Þgar samskiptin eru þannig á vinnustað þá er einfaldlega  allt betra. Við erum skilvirkari, þar sem hlutirnir eru bæði léttari og ganga hraðar fyrir sig. Já og svo líður okkur bara miklu betur því við upplifum eigin tilgang og njótum þess að skilja eftir okkur virði.  
en þegar þetta er á hinn veginn þá getum við upplifað að hinn aðilinn viðrist tala babýlónsku. Við skiljum hann ekki og hann skilur okkur ekki heldur. Margt er rangtúlkað og misskilið og samskiptin súrna fljótt og verða vanvirk. Þá líður okkur ekki vel, við sjáum ekki hvort við höfum tilgang, okkur finnst við ekki skilja eftir okkur virði og missklin.
Þegar líðanin er þannig þá eru meiri líkur á kulnun starfsfólks og starfsmannavelta eykst.
Það er hægt að hafa mikil áhrif á gæði samskipta á vinnustað með réttri þjálfun.
Við notum sambland af aðferðafræði markþjálfunar, sáttamiðlunar og teymisþjálfunar
​við að þjálfa fólk í skilvirkum samskiptum. 

Ávinningur

Bætt samskipti skila sér margfalt til baka í ýmsu formi:
  • Aukin skilvirkni 
  • Bætt samskipti
  • Sterkari liðsheild
  • Eftirsóknarverðari vinnustaður
  • Minni líkur á kulnun í starfi
  • Aukinni vellíðan starfsfólks
  • Meiri helgun starfsfólks
  • Lægri starfsmannaveltu

Þegar þinn vinnustaður ákveður að fá þjálfa til að aðstoða við það að bæta samskipti og samstarf þá eruð þið sjálfkrafa að velja sjálf hvaða ávinning þið viljið ná fram á ykkar vinnustað.

Nálgunin

Þjálfunin getur náð allt frá tveimur einstaklingum upp í heilar deildir. Skipta má ferlinu í fjóra fasa:
  1. Frumgreining með mannauðsdeild eða stjórnanda þar sem þörfin er greind og línur lagðar um nálgun.
  2. Greining sem að jafnaði fer fram með einstaklingsviðtölum við þau sem taka þátt í ferlinu.
  3. Þjálfunin sjálf eða sáttamiðlunin þar sem þátttakendur móta hvernig þau vilja eiga samskipti og vinna saman. Ef það eru einhver óuppgerð mál þá er mikilvægt að taka þau einnig fyrir. Mikið er lagt upp úr að skapa öruggt rými til opinna og uppbyggilegra samskipta undir handleiðslu þjálfa. Þetta getu tekið  1-3 skipti eftir umfangi. 
  4. Eftirfylgni. Mikilvægt er að fylgja árangri eftir og móta samskipti áfram. Æskilegt er að miða við 1-3 skipti eftir umfangi.

Vilt þú taka af skarið og leggja drög
​að bættum samskiptum á þínum vinnustað?

Þú getur bókað 30 mínútna viðtal til að fá að vita meira eða senda tölvupóst og spyrjast fyrir. 
Bóka viðtal
senda tölvupóst
Picture

Taktu flugið

[email protected]
Sími: +354 864 2332
​
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið