• Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Taktu flugið
TAKTU FLUGIÐ
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Taktu flugið

Ráðgjöf

Aukin skilvirkni leiðir til vaxtar

Breytingar eru oftast erfiðar fyrir flesta!

En framþróun er breytingum háð og framþróunin hefur aldrei verið hraðari en nú. Sérstaklega sú stafræna. En breytingar gerast ekki hraðar en við mannfólkið erum tilbúin fyrir. Þess vegna skiptir mannlega hliðin svo miklu máli. 
​
Það felur í sér að fyrirtæki & stofnanir og leiðtogar þeirra þurfa að vera viss um að sú átt sem stefnt er að sé sú rétta og sífellt þarf að vinna að því að öll innan fyrirtækisins séu að róa í sömu áttina og starfsemin sé skilvirk.

Við vinnum með viðskiptavinum okkar að því að stefna í rétta átt með sem skilvirkustum hætti.

Picture

​If the ladder is not leaning against the right wall,
​every step we take just gets us to the wrong place faster!

Stephen Covey

Stefnumótun

Reglulega þarf að taka stöðuna á stefnu fyirirtækisins, huga að því að stefnt sé í rétta átt, aðlaga reksturinn að aðstæðum og vera viss um að framtíðarsýnin sé skýr.

​ Við aðstoöum við stefnumótun á ýmsu sviði. 
fá fund um málið

Innleiðing stefnu

Það eru ýmsar áskoranir sem fylgja því að innleiða stefnu þegar hún hefur verið sett. Algengasta ástæða þess að innleiðing stefnu tekst ekki nægilega vel er mótstaða hjá starfsfólki. Mótstaðan er eðlileg og getur verið af ýmsum toga eins og að tilgangur er ekki nægilega skýr, sýnin og skilningur er ekki sameiginleg, hlutverk eru ekki skýr eða ferlar ruglingslegir. 

Við aðstoðum fyrirtæki og starfsfólk við að innleiða stefnu  hratt og örugglega. Vinnan fer fram í 4 skrefum. 
1. Upphafsfundur með verkkaupa þar sem farið er yfir helstu áskoranir og hver aðkoma okkar gæti verið að úrlausn þeirra. 
2. Þarfagreining. Hvað vantar til að innleiðingin geti átt sér stað?  Nálgun við þarfagreiningu getur verið mismunandi en þessi greining felst í vinnu með fólkinu sem þarf að breyta.
3. Starfsfólk fær faglega og aðstoð við að ná utan um það sem vantar til að breytingin geti skilað þeirri skilvirkni sem stefnt er að og vellíðan þeirra á vinnustað.
4. Eftirfylgni. Farið er yfir hvað hvefur tekist vel til og hvar enn er úrbóta þörf. Hér getur verið að einstakir þættir sem þarfnast frekari úrbóta leiði okkur aftur í gegnum þetta ferli, bara í minna mæli.

Aðferðir sem nýttar eru geta verið sambland af ráðgjöf, teymisþjálfun og stjórnendaþjálfun. Allt eftir aðstæðum og þörfum í hverju tilviki fyrir sig.
Fá fund um málið

Hagræðing & niðurskurður

Þegar fyrirtæki og stofnanri þurfa að taka til í rekstrinum hjá sér og hagræða þá þarf stefnan og tilgangurinn að vera skýr. Auk þess þarf að huga vel að starfsfólkinu þar sem líkur eru á áuknu álagi á þeim. ÞEgar verið er að hagræða, skera niður og fækka starfsfólki þá er mikilvægt að huga að eftirfarandi:
1. Tilgangur fyrirtækisins og starfsfólks er skýr
2. Hvaða ný verkefni á að fara í, hvaða verkefni á að halda áfram með og hvað á að hætta að gera? 
3. Huga þarf sérstaklega að starfsfólkinu, sérstaklega eftir uppsagnir því oft er vanlíðan hjá þeim sem áfram eru, lítlu minni en hjá þeim sem hurfu á braut. 

Nálgunin felst í markvissri nálgun að skilvirkni þar sem farið er tilgang, mikilvægi verkefna og verkferla. Það er fólkið sjálft sem er best í að móta hvernig tilganginum verði náð og við aðstoðum fólkið við að ná utan um starfsemina, gera hana sem skilvirkasta og öðlast eignarhald og þar með helgun á nýjum aðstæðum.
Fá fund um málið

Skölun fyrirtækja í örum vexti

Hjá þeim fyrirtækjum sem vaxa hraðast þá segir starfsfólkið oft þá sögu að þau nái ekki að innleiða nýtt skipurit áður en gera þarf næsta skipurit því fyrirtækið hefur vaxið upp úr því fyrra. 

Við þessar aðstæður er mikilvægt að vinna markvisst með starfsfólki við að aðlaga skipurit og verkferla að vinnunni. Partur af því er einnig að aðstoða og kenna fólki sjálfu að halda utan um aðlögunina og breytingu á verkferlum.

Við aðstoðum við skölunina, breytingar á skipulagi og verkferlum. Einnig vinnum við með fólkinu, teymum og einstaklingum. Við þessar aðstæður er ekki síður mikilvægt að teymi nái hratt og örugglega að tileinka sér breytingarnar um leið og þær verða. Hér nýtist teymisþjálfun sérstaklega vel og leiðtogaþjálfun fyrir ört vaxandi stjórnendahóp.

fá fund um málið

Samruni fyrirtækja & sameining deilda

Þegar heilu fyrirtækin eru sameinuð eða jafnvel bara deildir innan sama fyrirtækisins þá koma saman tveir menningarheimar. Oftar en ekki þá nást ekki í fyrstu atrennu samlegðaráhrifin sem stefnt er að í upphafi. Þess vegna er mikiðvægt að fá inn tímabundna aðstoð. Ný og samsett teymi fá stuðningur við að kynnast og að móta starfsemina, verkferla, hlutverk og nálgun.  

Hér er ávinningur teymisþjálfunar ótvíræður. Upplegg þeittar teymisþjálfunar sem við veitum getur verið nálgun á: Tilgang & hvata, innri ferla, ytri ferla, samskipti, forystu og sameiginlegan lærdóm.

fa fund um málið

Arftakaáætlun

Það hefur verið sagt um stjórnendur að bestu stjórnendurnir eru þeir sem ná að gera sjálfa sig ómissandi og þegar þeir hverfa frá störfum að þá komi ekkert hökt í starfsemina. 

Arftakaáætlun er ein besta leiðin sem fyrirtæki geta farið til að koma í veg fyrir hökt á starfsemi þegar stjórnendur hverfa frá. Þ.e. það eru aðrir einstaklinar sem hafa fengið þjálfun í að taka við keflinu. 

Við aðstoðum fyrirtæki við að setja stefnu um arftakaáætlun og þjálfa verðandi stjórnendur í stjórnendahlutverkinu og umbreytingu frá því að vera sérfræðingur yfir í að taka við stjórnartaumum. 

fá fund um málið

Styrking vinnustaðamenningar

Styrking vinnustaðamenningar er viðvarandi ferli!
Skoða betur
Picture

Taktu flugið

[email protected]
Sími: +354 864 2332
​
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Taktu flugið