|
Einstaklingsmiðað fræðslunámskeið þar sem þátttakendum er gefið tækifæri til að kynnast sér á allt annan máta en til þessa.
Hér er lögð áhersla á að skoða hvernig hverjum og einum þátttakanda er eiginlegt að nálgast viðfangsefni í starfi og leik. Þegar litið er á eiginleika einstaklingsins, fremur en að horfa á styrkleika og veikleika þá skapast rými til að skoða sig með uppbyggilegum hætti. Það gefur okkur færi á að skilja betur hvað gefur okkur orku og hvað dregur úr okkur orku. Þegar við horfum á hvernig okkur er eiginlegt og ekki eiginlegt að nálgast verkefni í stað þess að horfa á okkur út frá styrkleikum og veikleikum þá erum við að skapa okkur rými til að vera við sjálf og skilja hvað okkur líður betur með og hvenær við erum að ganga á okkur. Kraftaverkin gerast einmitt þegar við erum bara við sjálf og ekki að reyna að vera eins og einhver annar. |
Þegar teymi nýtir þessa greiningu og fer í sjálfsskoðun af þessu tagi þá skakpast dýrmætt rými til að skoða einnig samskipti og samvinnu milli einstakra meðlima teymisins. Reynslan af því að vinna með þessa greiningu sýnir að námskeið af þessu tagi hjálpar samstarfsfólki að skilja bæði sig og aðra í teyminu betur, umburðarlyndi á skilningur fjölbreytileikanum eykst, teymið styrkist, traustið eykst og fólki líður betur.
Nálgun á námskeiðinu getur verið mjög mismunandi milli hópa og uppbygging þess felur í sér sveigjanleika og faglegan ramma fyrir þátttakendur til að hver og einn einstaklingur og hvert og eitt teymi nái þeim ávinningi sem þeim hentar best. Unnið er með NBI personugreiningu sem þróuð hefur verið af Kobus Neetling og spanna rannsóknir sem greiningin byggir á yfir 3 áratugi. |
Ávinningur!Einstaklingar:
|
Fyrir hverja?Námskeiðið er aðallega hugsað fyrir vinnustaði og þá annað hvort fyrir hópa, teymi eða deildir.
|
Námskeiðið er þríþætt:1. Persónugreining
Svara þarf rafrænni greiningu. Spurningar eru samtals 46. Það tekur 25-35 mínútur að svara þeim. Þátttakendur fá sína greiningu afhenta á námskeiðinu. Greiningin gefur góða sýn á hvernig þátttakendum er eiginlegt að nálgast viðfangsefni lífsins. Sjá dæmi um greiningu á mynd. 2. Staðarnám Fræðsla um hugmyndafræðina sem greiningin byggir á og hvernig unnt er að nýta þessar nýju upplýsingar í starfi og leik. Þátttakendur fá greininguna sína afhenta og fá tækifæri til að skoða sig og sína greiningu í samhengi við aðra. Hér er skoðað sérstaklega hvar tækifæri til bættra og skilvirkari samskipta liggja. Lengd 3 klst. 3. Eftirfylgni Sambland af áframhaldandi fræðslu og þjálfun þar sem þátttakendur vinna bæði með nýja sjálfsþekkingu og aukna þekkingu á öðrum. Hér getur nálgunin verið mismunandi milli námskeiða því áhersla hverju sinni fer eftir því hvað þátttakendur vilja skoða nánar og vinna með. Lengd 3 x 1,5 klst. |
Óski þátttakendur eftir einkatímum í framhaldi af námskeiðinu þá eru slíkir tímar á afslætti.
|
Næsta námskeiðEkkert opið námskeið er skipulagt eins og er.
Námskeiðið er aðallega hugsað fyrir fyrirtæki og hópa til að kaupa til sín. Nálgunin er þá sniðin að þörfum hverju sinni. Það hefur til dæmis gefist afar vel að fá námskeiðið sem hálfan dag á starfsdag. |
VerðÍ lausasölu er verð fyrir hvern einstakling kr. 96.500,-
Þegar fyrirtæki eða hópar kaupa námskeið til sín þá er veittur hópafsláttur. Afslátturinn sem er veittur getur verið mismunandi og tekur mið af fjölda, veitingum á námskeiðinu, staðsetningu og ramma námskeiðsins. |
Átt þú rétt á styrk?
Flest stéttarfélög hafa menntastyrk sem félagsmenn geta sótt um námsstyrki
til faglegrar menntunar eins og þetta námskeið er. Styrkir eru oftast veittir
að stórum hluta eða öllu leiti. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
Einnig geta flestir vinnuveitendur sótt í sambærilega sjóði.
Ekki er úr vegi að kanna slíkt hjá þínum vinnustað.
Flest stéttarfélög hafa menntastyrk sem félagsmenn geta sótt um námsstyrki
til faglegrar menntunar eins og þetta námskeið er. Styrkir eru oftast veittir
að stórum hluta eða öllu leiti. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
Einnig geta flestir vinnuveitendur sótt í sambærilega sjóði.
Ekki er úr vegi að kanna slíkt hjá þínum vinnustað.