• Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið
TAKTU FLUGIÐ
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið

Aukin leiðtogafærni með  þjálfun tilfinningagreindar

​​​Einstakt tækifæri fyrir þau sem búa yfir hugrekki til að horfa inn á við og eru tilbúin í faglega
​og krefjandi þjálfun þar sem unnið er markvisst að persónulegum vexti í leiðtogahlutverkinu!

Aðgerðamiðað fræðslu- og færninámskeið þar sem þátttakendur vinna markvisst að því að styrkja eigin leiðtogafærni með því að efla tilfinningagreind sína.
Námskeiðið er samansett af fræðslu um leiðtogafærni & tilfinningagreind og mikilvægi tilfinningagreindar í hlutverki leiðtogans. Þátttakendur fá greiningu á sinni tilfinningagreind og samhengi hennar við eiginleika umbreytingarleiðtogans. Nemendur vinna síðan með nýja þekkingu á eigin leiðtogafærni og tengja við núverandi áskoranir í starfi. Hér er um að ræða persónulega þjálfun, stuðning og hvatningu við að tileinka sér þá eiginleika umbreytingarleiðtogans sem styrkja mest og valdefla hvern þátttakanda í raunaðstæðum. 

​Unnið er með EQ-i 2.0 greiningartækið á tilfinningagreind. Líkanið var upphaflega þróað til að greina hvaða persónueinkenni hefðu mestan skýringarmátt á velgengni hermanna á átakasvæðum. Síðar hefur það verið aðlagað að  áskorunum stjórnenda og leiðtoga í starfi.​​
Picture

Ávinningur!

  • Valdeflir stjórnendur í hlutverki sínu. 
  • Kynnir tilfinningagreind, mátt hennar og mikilvægi í stjórnendahlutverkinu. 
  • Kynnir umbreytingarleiðtogann og eiginleika hans. 
  • Gefur þátttakendum persónulega greiningu á tilfinningagreind þeirra þar sem niðurstöður koma í viðamikilli 26 síðna skýrslu. 
  • Skýrir hvernig undirsvið tilfinningagreindar tengjast eiginleikum umbreytingarleiðtogans og þar með  leiðtogafærni þátttakenda.
  • Nemendur fá faglega aðstoð við að efla eigin tilfinningagreind og leiðtogafærni og tengja við  áskoranir og raunaðstæður í starfi. 
  • Veitir eftirfylgni við að tileinka sér breytingar í formi fræðslu og þjálfunar byggt á þörfum hvers og eins.

Fyrir hverja?

​Því betra samband milli stjórnenda og starfsfólks, því skilvirkara er allt vinnuumhverfið. Rannsóknir sýna fram á að tilfinningagreind stjórnenda eykur helgun starfsmanna.
  • Þetta námskeið er frábært næsta skref til að efla leiðtogafærni fyrir:
  • Alla stjórnendur með mannaforráð – hvort heldur sem þau tilheyra framkvæmdastjórn eða eru millistjórnendur. 
  • Stjórnarfólk – hreinskipt og heilbrigð skoðanaskipti eru afar mikilvægur partur stjórnarstarfa og þær þurfa einnig að átta sig á og skilja vinnustaðamenningu og hvernig unnið er með hana. 
  • Verkefnastjóra – sérstaklega fyrir þau sem hafa forræði yfir verkefnum en ekki fólkinu sem sinnir verkefnunum. 
  • Einstaklinga sem stefna á að vaxa í starfi og verða stjórnendur framtíðarinnar.  

Fyrirtæki geta keypt námskeið fyrir stjórnendur sína eða deildir. 
Það getur bæði verið fjárhagslega hagkvæmara og
​unnt er að aðlaga námskeiðið að áskorunum og aðstæðum fyrirtækisins.

Námskeiðið er þríþætt:

1.  Persónugreining
Svara þarf rafrænni greiningu um tilfinningagreind. Alls 133 spurningar. Þátttakendur fá sína skýrslu senda fyrir námskeiðið og þurfa að kynna sér vel. Skýrslan gefur upplýsingar um tilfinningagreind og leiðtogafærni viðkomandi.
Sjá dæmi um yfirlitssíðu hér til hægri.


2.  Staðarnám
Fræðsla um tilfinningagreind og eiginleika umbreytingarleiðtogans. Fræðsla og þjálfun þar sem nemendur vinna með sína greiningu og þá eiginleika sem þau vilja efla.
Lengd 8,5 klst.


3. Eftirfylgni
Sambland af áframhaldandi fræðslu og þjálfun þar sem þátttakendur vinna  með þá leiðtogafærni sem þau vilja efla og tileinka sér.
Þessi hluti fer fram á Teams en ef þátttakendur vilja er möguleiki á að hittast í persónu. Þetta eru hóptímar.
Lengd 3 x 1,5 klst. 


Óski þátttakendur eftir einkatímum í framhaldi af námskeiðinu þá eru slíkir tímar á afslætti. ​
Picture

Næstu námskeið

Ekkert opið námskeið er skipulagt eins og er.

Námskeiðið hentar afar vel sem þjálfun fyrir stjórnendur, og sem hluti af arftakaáætlun.  
​
Þegar fyrirtæki kaupa þetta námskeið til sín þá er nálgunin sniðin að þörfum hverju sinni. 

Verð:

Í lausasölu er verð fyrir hvern einstakling kr. 174.500,-

Þegar fyrirtæki eða hópar kaupa námskeið til sín þá er veittur hópafsláttur. Afslátturinn sem er veittur getur verið mismunandi og tekur mið af fjölda, veitingum á námskeiðinu, staðsetningu og ramma námskeiðsins.  
​
Gert er verð og verktilboð í þetta námskeið.  

Hversu magnað er að geta eflt eigin tilfinningagreind?

Hvernig myndi henta þér best eð efla þína?

Skrá mig / forvitnast um málið
​Átt þú rétt á styrk?
Flest stéttarfélög hafa menntastyrk sem félagsmenn geta sótt um námsstyrki
til faglegrar menntunar eins og þetta námskeið er. Styrkir eru oftast veittir
​að stórum hluta eða öllu leiti. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
Einnig geta flestir vinnuveitendur sótt í sambærilega sjóði.
Ekki er úr vegi að kanna slíkt hjá þínum vinnustað.
Picture

Taktu flugið

[email protected]
Sími: +354 864 2332
​
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið