• Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið
TAKTU FLUGIÐ
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið

Jarðvegur skilvirkni & sköpunar

HVERSU RÆKTARLEGUR ER VINNUSTAÐURINN ÞINN?
Í upphafi þessarar aldar var GOOGLE einn af mest eftirsóttu vinnustöðum heims og fyrirtækið bjó við þann munað að geta valið úr besta og efnilegasta starfsfólki heims við ráðningar. Þrátt fyrir þennan mikla kraft sem bjó í hverjum og einum starfsmanni þá var árangur og afköst þeirra teyma sem störfuðu innan GOOGLE mjög mismunandi og færni og hæfni starfsfólks var ekki nægjanleg til árangurs. 
​Rannsókn hjá GOOGLE á því hverjir væru áhrifaþættir velgengni teyma leiddi í ljós að það var í þessari röð: 
1. Sálrænt öryggi (Psycological safety).
2. Vera háð hvert öðru og geta reitt sig á aðra í teyminu.
3. Skipulag og skýrleiki þar sem markmið og hlutverk eru skýr.
4. Að hafa tilgang.
5. Að hafa áhrif til góðs. 
En það áhugaverðasta í niðurstöðum þessarar rannsóknar var að ef sálrænt öryggi var ekki til staðar þá hættu hin atriðin sem hafa áhrif á velgengni teyma að skipta máli.  

Hversu áhugavert er það?

Mikilvægt er að gera greinarmun á sálrænu öryggi og vinnustaðamenningunni þar sem sálræna öryggið segir til um hvert andrúmsloftið er en vinnustaðmenningin segir til um hvernig starfsfólk nálgast verkefni sín og þau vandamál sem upp koma.

​​Hér er á ferðinni námskeið fyrir vinnustaði þar sem sálrænt öryggi er metið með könnun sem allir taka þátt í, starfsfólk er frætt um hvað felst í sálrænu öryggi og mikilvægi þess. Að síðustu eru eftirfylgnitímar þar sem starfsfólkið vinnur saman og leggur drög að því sálræna umhverfi sem þau vilja búa við.  
Picture
Að búa við öryggi og vera ekki refsað eða lítillækkuð/aður fyrir að viðra hugmyndir, spyrja spurninga, sýna áhyggjur eða að gangast við mistökum og að teymið veiti meðlimum sínum öryggi til að berskjalda sig.
Amy Edmondson, 1999

Ávinningur!

  • Gefur skilning á því hvað sálrænt öryggi er og hversu mikilvægt það er á vinnustað. 
  • Vinnustaðurinn fær upplýsingar um hvert sálræna öryggi er á þeirra vinnustað.
  • Starfsfólk fær faglegan stuðning og ramma til að vinna eftir við að efla sálrænt öryggi hjá sér.
  • Stuðlar að bættri og aukinni samvinnu.
  • Leiðir til aukinnar skilvirkni.
  • Eflir traust milli starfsmanna.
  • Skapar jarðveg fyrir sterka menningu.
  • Eykur vellíðan og helgun á vinnustað.

Fyrir hverja?

Námskeiðið er aðallega hugsað fyrir vinnustaði og þá annað hvort fyrir hópa, teymi eða deildir. ​
  • Stjórnendateymi og stjórnir. 
  • Deildir sem vilja efla samskipti sín, skilvirkni og vaxa saman.
  • Starfshópar þvert á deildir sem bera sameiginlega á byrgð á ákveðnu verkefni. 
  • Millistjórnendur.
  • Sem partur af arftakaáætlun þar sem stjórnendur framtíðarinnar innan fyrirtekisins fá þjálfun. 
  • ​Heilu fyrirtækin.
  • Stundum notað sem partur af teymisþjálfun.
  • Mikilvægur grunnur fyrir fyrirtæki sem huga að því að styrkja menningu sína.
Picture

Fjögur þrep sálræns öryggis

1.   Að tilheyra.
2.   Að búa við öryggi til að læra.  
3.   Að búa við frelsi til að framkvæma.
4.   Að búa við frelsi til áskorunar.

Timothy R. Clark, 2020

Námskeiðið er þríþætt:

1.  Persónugreining
Sálrænt öryggi á vinnustaðnum er metið með könnun sem allir þurfa að svara. Könnunin fer ýmist fram með rafrænni greiningu eða sem hluti af persónulegu samtali í upphafi teymisþjálfunar eða í vinnu við að styrkja vinnustapamenningu.  
​Spurningar eru samtals 20.
2.  Staðarnám
Fræðsla um sálrænt öryggi og mikilvægi þess fyrir vinnustaði. 
Niðurstöður greiningar eru kynntar.
Þjálfun: Unnið er með sálrænt öryggi á vinnustaðnum. Hvað þarf að gera til að bæta andrúmslofið? Hætta að gera, byrja að gera og hverju á að halda óbreyttu?
Lengd 3 klst.
3. Eftirfylgni
Sambland af áframhaldandi fræðslu ef þarf en áherslan er á teymisþjálfun þar sem teymið vinnur að því að tileinka sér aukið sálrænt öryggi.
​Lengd 2 x 1,5 klst. 

Næsta námskeið

Eingöngu í boði fyrir teymi, deildir og vinnustaði. Mjög æskileg upphafsvinna þegar unnið er að því að styrkja vinnustaðamenningu.
​  
​Þetta námskeið hentar afar vel sem hálfur starfsdagur hjá teymum, deildum, stjórnendahópum eða stjórnum.

Ekki er boðið upp á þetta námskeið sem opið einstaklingsnámskeið.

Verð

Gert er verð og verktilboð í þetta námskeið.  

Lágmarksverð fyrir námskeiðið er kr. 375.000,- kr. Það er fyrir allt að 6 manns og uppphafskönnun er gerð rafrænt. Verð hækkar með fjölda þátttakenda umfram 6 og þá er gert verðtilboð þar sem veittur er magnafsláttur. 

Fjöldi þátttakenda, staðsetning, fyrirkomulag eftirfylgni og veitingar eru helstu þættir sem hafa áhrif á verð þegar verðtilboð er gert.

Hversu frjór er jarðvegurinn á þínum vinnustað? 

Viltu athuga málið? 

Spyrjast fyrir
Átt þú rétt á styrk?
Flest stéttarfélög hafa menntastyrk sem félagsmenn geta sótt um námsstyrki
til faglegrar menntunar eins og þetta námskeið er. Styrkir eru oftast veittir
​að stórum hluta eða öllu leiti. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
Einnig geta flestir vinnuveitendur sótt í sambærilega sjóði.
Ekki er úr vegi að kanna slíkt hjá þínum vinnustað.
Picture

Taktu flugið

[email protected]
Sími: +354 864 2332
​
  • Heim
  • Þjálfun
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Fyrirlestrar
  • Taktu flugið