Fyrirlestrar hjá Hjördísi Dröfn eru hugsaðir sem valdefling, hvatning, innblástur, fræðsla og skemmtun.
Hér fyrir neðan má sjá hugmyndir að fyrirlestrum sem Hjördís býður upp á. Ef þú sérð ekki það sem þú ert að leita að
þá er aldrei að vita nema Hjördís sé til í að vinna nýjan fyrirlestur sniðinn að þínum þörfum.
Prófaðu bara að spyrja!
Hér fyrir neðan má sjá hugmyndir að fyrirlestrum sem Hjördís býður upp á. Ef þú sérð ekki það sem þú ert að leita að
þá er aldrei að vita nema Hjördís sé til í að vinna nýjan fyrirlestur sniðinn að þínum þörfum.
Prófaðu bara að spyrja!
Fyrirlestrar Hjördísar eru allir gagnvirkir í einhverri mynd
en það er ein áhrifamesta leiðin til að hjálpa fólki
að taka sem mest með sér frá fyrirlestrunum.
en það er ein áhrifamesta leiðin til að hjálpa fólki
að taka sem mest með sér frá fyrirlestrunum.
Tilfinningagreind á vinnustaðSífellt er talað um tilfinningagreind og mikilvægi hennar í samskiptum. En hvaða þættir tilfinningagreindar á vinnustað eru eftirsóknarverðir? Hvernig er unnt að vinna með tilfinningagreind og efla hana? (Já, hún eykst með aldrinum og það er hægt að vinna markvisst að því að auka tilfinningagreindina sína.) Eiginleikar tilfinningagreindar á vinnustað eru samkvæmt EQ-i 2.0 líkani: Sjálfsskynjun, sjálfstjáning, félagsfærni, ákvörðunartaka og streytustjórnun. Rannsóknir á bakvið þetta líkan ná yfir 40 ár og þetta er eitt algengusta líkan sem notað er á heimsvísu til að mæla tilfinningagreind á vinnustað. Fræðandi og eflandi fyrirlestur um tilfinningagreind og hvernig unnt er að styrkja og efla eigin tilfinningagreind. Lengd: 50-60 mínútur. Máttur eigin viðhorfs og mótun þessHér er skoðað viðhorf frumkvæðis sem leiðir til lærdóms og vaxtar. Það er borið saman við dæmandi viðhorf og eftir á viðbrögð sem draga úr árangri, gera allt erfiðara um vik og draga úr mætti. Tækifærin felast í því að þekkja einkenni þessara mismunandi viðhorfa og að finna sínar leiðir til að velja sér viðhorf. Upplýsandi, fræðandi og hvetjandi fyrirlestur sem hjálpar fólki við að sjá birtingarmynd og áhrif mismunandi viðhorfa í starfi og leik. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fólk til að staldra við, líta inn á við og móta eigin leiðir við að velja sér viðhorf. Lengd: 30-40 mínútur. |
Framtíðarfærnin
|