|
Við heyrum það ansi oft að fólki finnst tíma þeirra illa varið á fundum. Það sem fólk telur helst upp í þeim efnum er að því finnst fundirnir ómarkvissir, umræðan út um allt og oft ekki málefnaleg. Engin tímastjórnun og að lokum engin niðurstaða - að minnsta kosti ekki sameiginleg niðurstaða. Og stundum var eitthvað helv... fífl á fundinum sem var ekki samvinnuþýtt.
|
Hugsum okkur nú annars konar fund! Hann byrjar bæði og endar á settum tíma. Umræðan er málefnaleg og niðurstaða fundarins er sameiginleg. Næstu skref eru á hreinu, hver ber ábyrgð á þeim og hvenær þeim verður lokið. Ágreiningurinn sem kom upp var málefnalegur og skilaði betri niðurstöðu.
Munurinn á þessu tvennu er fundarstjórnunin. Hver er galdurinn? |
Ávinningur
|
Fyrir hverjaNámskeiðið hentar öllum sem viðja styrkja sig í fundarstjórn og öðlast um leið aukna sjálfsþekkingu og skilning á hvernig mismunandi einstaklingar vilja nálgast verkefni með mismunandi hætti.
Það hentar vel fyrir:
|
Uppbygging námskeiðs
|
Námskeiðið er þríþætt:
1. Persónugreining Svara þarf rafrænni greiningu (Ýmist kallað 360° hugsnið eða NBI greining). Spurningar eru samtals 46. Það tekur 25-35 mínútur að svara þeim. Þátttakendur fá sína greiningu afhenta á námskeiðinu. Greiningin gefur góða sýn á hvernig þátttakendum er eiginlegt að nálgast viðfangsefni lífsins. Sjá dæmi um greiningu á mynd. 2. Námskeið fyrri hluti Fræðsla um hugmyndafræðina sem greiningin byggir á og hvernig unnt er að nýta þessar nýju upplýsingar í starfi og leik. Þátttakendur fá greininguna sína afhenta og fá tækifæri til að skoða sig og sína greiningu í samhengi við aðra. Hér verður sjónum beint að því hvernig greiningin getur nýst við fundarstjórn. Bæði með aukinni sjálfsþekkingu og auknum skilningi á öðrum og hvernig þeim getur verið tamt að nálgast viðfangsefni sín. Lengd 3 klst. 3. Námskeið seinni hluti Farið er yfir það helsta varðandi praktísk atriði varðandi fundarstjórn. Eins og fundarboðun, undirbúning, eðli & tilgang, eftirfylgni ákvarðana. Einnig verða mismunandi fundarform og eiginleikar þeirra rædd. Þetta mannlega getur verið ansi fyrirferðamikið og fær sinn tíma hér. Þar má nefna gagnkvæma virðingu, að fá fram sjónarmið allra, sáttamiðlun, tímastjórnun, sálrænt öryggi, þjálfandi fundarstjórn og mótun fundamenningar. Þessi hluti námskeiðsins er sambland af fyrirlestri og umræðu. Lengd 3 klst. |
Mikilvægt er að þátttakendur séu búnir að svara rafrænni persónugreiningu 2 dögum áður en fyrra skipti námskeiðsins fer fram!
|
Næsta námskeiðEkkert opið námskeið er skipulagt eins og er.
Námskeiðið er alla jafna hugsað fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki geta einnig keypt þetta námskeið til sín og þá fyrir hóp starfsmanna hjá sér. |
VerðÍ lausasölu er verð fyrir hvern einstakling kr. 81.500,-
Þegar fyrirtæki eða hópar kaupa námskeið til sín þá er veittur hópafsláttur. Afslátturinn sem er veittur getur verið mismunandi og tekur mið af fjölda, veitingum á námskeiðinu, staðsetningu og ramma námskeiðsins. |
Átt þú rétt á styrk?
Flest stéttarfélög hafa menntastyrk sem félagsmenn geta sótt um námsstyrki
til faglegrar menntunar eins og þetta námskeið er. Styrkir eru oftast veittir
að stórum hluta eða öllu leiti. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
Einnig geta flestir vinnuveitendur sótt í sambærilega sjóði.
Ekki er úr vegi að kanna slíkt hjá þínum vinnustað.
Flest stéttarfélög hafa menntastyrk sem félagsmenn geta sótt um námsstyrki
til faglegrar menntunar eins og þetta námskeið er. Styrkir eru oftast veittir
að stórum hluta eða öllu leiti. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
Einnig geta flestir vinnuveitendur sótt í sambærilega sjóði.
Ekki er úr vegi að kanna slíkt hjá þínum vinnustað.