• Heim
  • Fréttir
TAKTU FLUGIÐ
  • Heim
  • Fréttir

Þegar eitthvað spennandi
​og skemmtilegt gerist
hjá Taktu flugið...

... eins og fréttir, hugrenningar
​eða eitthvað nýtt...

... þá birtist það hér!

Flugið getur verið alls konar!

3/3/2022

0 Comments

 
Eftirfarandi viðtal við mig birtist í Aukablaðinu: Félag kvenna í atvinnulífinu sem gefið var út með  með Fréttablaðinu þann 20. janúar 2022. 
Smelltu bara á hnappinn hér til hægri til að sjá viðtalið :-)

Í viðtalinu er stuttlega farið yfir laiðangurinn og hvað ég geri sem leiðtogamarkþjálfi en  það auðvitað bara rétt skrapar yfirborðið.
​
Leiðangurinn hefur verið nokkuð langur en er samt bara rétt að hefjast. Á næstu vikum, mánuðum og árum mun ég annað slagið deila með ykkur því sem á daga mína drífur á leiðinni úr fortíðinni - inn í framtíðina.  
Viðtalið
Picture
Myndin hér að ofan var tekin í tilefni umfjöllunarinnar og ég leyfi henni að fylgja með.
0 Comments

Heimasíðan í loftið

1/23/2022

0 Comments

 
Picture
Hjá Taktu flugið eru hlutirnir að smella hver af öðrum. Í nýliðinni viku gerðist það svo að heimasíðan fór í loftið. Það er ótrúlega skemmtilegt skref enda er hún samantekt á því sem  er að gerast hjá Taktu flugið. Partur af því að setja upp heimasíðu er að vera búin að setja niður fyrir sig hver maður er og hvert er stefnt. Það er komið. 
Ég er leiðtoga- og stjórnendamarkþjálfi sem stefni að því að bjóða upp á heildstæða markþjálfun fyrir fyrirtæki. Þjónustan sem ég mun bjóða til að byrja með verður sambland af einstaklingsþjálfun varðandi starfstengdar áskoranir, teymisþjálfun, breytingastjórnun og námskeið. Náskeiðin eru opin það sem einstaklingar geta komið og einnig er unnt að fá sérsniðin námskeið inn í fyrirtæki. 
​
Fleiri járn eru í eldinum og hér verður sagt frá þeim jafnóðum og það sem verið er að smíða verður tilbúið. Ég mun aðlaga framboð þitt og þjónustu að því sem viðskiptavinurinn vill. Því skora ég á þá sem eru að leita að einhverju sem þeir eru ekki aðveg að finna að setja sig í samband við mig og við getum farið yfir hlutina. Aldrei að vita nema okkur takist að töfra fram það sem leitað er að. Að minnsta kosti vitum við það ekki nema skoða hlutina. 
​
Allar myndir á heimasíðunni eru teknar af Einari Rúnari Sigurðssyni, fjallaleiðsögumanni og ljósmyndara. Einar ólst upp í Öræfunum og starfar þar sem fjallaleiðsögumaður. Hann fer bara í skemmtilegar ferðir með viðskiptavini sína eins og á Vatnajökul, í íshella á Skeiðarársandi og út í Ingólfshöfða svo eitthvað sé nefnt. 

Logo-ið gerði ég sjálf og nota þar skammstöfunina TF. Sjálfri fannst mér það afar skemmtileg tilviljun þegar ég áttaði mig á að TF sem er skammstöfun fyrir Taktu flugið hefur líka þessa skemmtilegu tengingu við flugvélar. 
​
0 Comments

    Hjördís Dröfn

    Elskar fólk og fjölbreytileika þess. Fær sérstaka ánægju af að sjá bæði sjálfa sig og aðra vaxa og dafna - sérstaklega aðra.

    Eldra efni

    March 2022
    January 2022

    Flokkar 

    All
    Fréttir

    RSS Feed

Picture

Taktu flugið

hjordisdrofn@taktuflugid.is
Sími: +354 864 2332
​
  • Heim
  • Fréttir